25.05.2001
Úrslit tilkynnt og verðlaun afhent í dag Síðdegis í dag fer fram verðlaunaafhending í
þessari keppni um bestu heimasíðugerð í tengslum við
skólana.
Verðlaunaafhendingin í sal Námsflokkanna á
Fræðslumiðstöð.
07.04.2001 Skilafrestur útrunninn Frestur til að skila inn vefsíðum var 6. apríl.
18.01.2001 Skráning, skil og verðlaunaafhending!
Skráningarfrestur hefur verið framlengdur til
15.febrúar. Gerð vefsíðna á að vera lokið 6.apríl
og verðlaunaafhending verður ekki síðar en 16.maí.
18.01.2001 Verðlaun
Verðlaun í hverjum flokki eru:
1. sæti Adobe Premier myndvinnsluforrit, frá
SKÝRR
2. sæti Stafræn myndavél, frá Linu.Net
3. sæti Canon 650U skanni, frá Nýherja
Fjórtán lið luku keppni í
heimasíðukeppni grunnskólanna í Reykjavík 2000 - 2001.
Verðlaun afhent 25. maí.
Úrslit í heimasíðukeppni grunnskólanna í Reykjavík voru
kynnt og verðlaun afhent föstudaginn 25. maí. Fræðsluráð
Reykjavíkur hafði frumkvæði að keppninni en umsjón hennar
var hjá Fræðslumiðstöð og Íslenska menntanetinu. Keppnin var
kynnt fyrir skólunum í haust: Nemendur skráðu sig í keppnina
í litlum hópum, undir umsjón kennara.
Þátt tóku 46 lið, úr
14 skólum borgarinnar. Keppt var í efnisflokkunum Betri
borg, Landafundirnir miklu og Könnun geimsins. 14 lið luku
keppninni. Í dómnefnd sátu Hrannar Björn Arnarsson,
varaformaður fræðsluráðs, Eyþór Arnalds framkvæmdastjóri
Íslandssíma, Halldór Másson fyrir Íslenska menntanetið,
Kristín Jónsdóttir forstöðumaður þróunarsviðs
Fræðslumiðstöðvar og Jón Ingvar Valdimarsson yfirmaður
tölvumála á Fræðslumiðstöð.
Hrannar Björn formaður
nefndarinnar afhenti verðlaunin við hátíðlega athöfn á
Fræðslumiðstöð 25. maí. Harnnar sagði að valið á bestu
heimasíðunum hefði verið erfitt og hann þakkaði kennurum sem
leiðbeindu hópunum við heimasíðugerðina. Veitt voru verðlaun
í hverju flokki: 1. verðlaun myndvinnsluforritið Adobe
Premier - frá Skýrr, 2. verðlaun stafræn myndavél frá Canon
sem Lina.Net lagði til og 3. verðlaun voru skanni Canon
N656U frá Nýherja.
Í flokknum Landafundirnir miklu fengu Seljurnar 1.
verðlaun; Silja Hendriksdóttir og Ása Margrét Helgadóttir úr
8. bekk í Seljaskóla. Síðan þeirra ber yfirskriftina
Landafundirnir miklu (http://keppni.ismennt.is/vefir/landafundir2/)
Í flokknum Betri borg fengu 1. verðlaun sterkar stelpur úr
7. bekk í Engjaskóla. Þær heita Anna María Hákonardóttir, Anna
Þóra Baldursdóttir, Edda Rós Örnólfsdóttir og Inga Birna
Guðsteinsdóttir (http://keppni.ismennt.is/vefir/sterkarstelpur/).
2. verðlaun
fengu Englarnir úr 7. bekk í Melaskóla fyrir síðuna Betri
borg. Englarnir heita Anna Ásthildur Thorsteinsson, Elín
Þórisdóttir, Helena Gunnars Marteinsdóttir og Sólveig
Hauksdóttir. Kennarinn þeirra er Ragnheiður Benediktsson.
http://keppni.ismennt.is/vefir/borgin/englar/
Í flokknum Könnun geimsins fengu 1. verðlaun
Súkkulaðisveppirnir þeir Einar Aðalsteinsson, Freysteinn
Oddsson og Viktor Örn Guðlaugsson, nemendur í 8. bekk í
Hlíðaskóla fyrir síðuna Geimurinn. (http://keppni.ismennt.is/vefir/geimurinn/)
2. verðlaun fengu
Sandra Rut Þorsteinsdóttir og Tinna Marina Jónsdóttir,
nemendur í 10. bekk í Álftamýrarskóla, fyrir síðuna Könnun
geimsins. : (http://keppni.ismennt.is/vefir/geimurinn2/)
3.
verðlaun hlutu liðsmenn 5.SS í Vogaskóla, Anton Örn Árnason,
Rúnar Þór Hallsson og Andri Guðmundsson fyrir síðuna Líf í
geimnum. : (http://keppni.ismennt.is/vefir/lifigeimnum/)
Umsjón:Kristín
Jónsdóttir hjá Fræðslumiðstöð Reykjavíkur, kristinjons@reykjavik.is
og Ingvar Ágúst Ingvarsson hjá
Íslenska menntanetinu, ing@ismennt.is